Kókos-karrý kjúklingasúpa
1 kjúklingur tilbúinn
4 msk góð olía
1 rauðlaukur
4 hvítlauksrif
3 skallottulaukar
1 rautt chilli
4 cm ferskur engifer rifinn
500 gr gulrætur
1 rauð paprika
1 sæt kartafla
1 dós kjúklingabaunir
4 msk rautt karrý paste
2 tsk kjúklingakraftur t.d. Oscar
3/4 – 1 litri vatn
2 dósir kókosmjólk
1 tsk cummin
2 tsk karrý
1 tsk paprikuduft
1/2 tsk himalayjasalt
safi úr 1/2 sítrónu
smá pipar
ferskur kóríander
Olía hituð í potti. Allur laukur maukaður í matvinnsluvél. Laukur látin krauma í 5 mín, þar næst grænmetið . Gott er að setja smá vatn til að brenni ekki við. Einnig er gott að gufusjóða gulrætur áður en þær fara í pottinn. Bætið við vatni og grænmetiskrafti, rautt karrý paste, kókosmjólk og kryddað. Látið malla í ca 30 mín. Kjúklingur rifinn út í súpuna og kjúklingabaunir, ég nuddaði húðina af baununum en það er val, latíð malla í ca 5-10 mín. Sítrónusafa kreist yfir og borið fram með ferskum kóríander