Bláberjaísinn sem allir elska
3 bananar frosnir í bitum
1 bolli bláber frosin
1 dós grísk jógúrt með vanillu og kókos frá Örnu
1/2 dl rjómi til að auðvelda blandaranum verkið
250 ml þeyttur rjómi
1/4 tsk. vanillu-extract
salt á hnífsoddi
Aðferð:
Allt nema þeytti rjóminn sett í öflugan blandara á við Vitamix þar til blandan er orðin eins og ís. Síðan er rjóma hrært varlega saman við.
Gaman er að setja bláber fyrst í ísformið og síðan hella ísnum yfir. Gott ísform nauðsynlegt, mæli með ísforminu frá Tupperware. Skreytt með ferskum jarðarberjum.