Súper einfaldur fiskréttur með pestó og krydd-kartöflum
800 gr ýsa
1/4 af fetaosti í kryddolíu
1/2 dós af góðu grænu pestó
sítrónupipar
Fiskur í eldfast mót, kryddaður með sítrónupipar. Fetaosti og pestó blandað vel saman og dreift yfir fiskinn. Setja í 180° heitan ofn í ca 20 mín.
1 kg íslenskar kartöflur skornar í 4 bita. Kryddað með salt og pipar, ásamt
spicy kryddi að eigin vali. 2 hvítlauksrif, smátt skorin. 3 msk olía. Öllu blandað
vel saman og dreift úr á bökunarplötu. Gott er að setja kartöflur, krydd og olíu í poka og hrista saman. Setja í 185° heitan ofn í ca 45 mín.