Sykurlausu vöfflurnar slá alltaf í gegn. Ilja okkur yfir vetrartímann 😉
5 dl létt ab-mjólk
5 dl hveiti (helming heilhveiti)
2 egg
1/2 tsk salt
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
6 msk góð olía
1/2 tsk vanilludropar
Fyrst fara þurrefnin saman í skál og svo vökvinn útí smám saman.
Uppskriftin þarf ekki að standa og bíða, hún er nokkuð stór, etv 12 vöfflur,
og þær eru matarmiklar og dáldið stífar og brakandi góðar með sultu og rjóma.