Túnfisksalat með eplum og trönuberjum
Þetta salat sló algörlega í gegn, gott að fá sæta bragðið af eplum og trönuberjum í bland við túnfiskinn og eggin.
1 dós túnfiskur í vatni
1 dós túnfiskur í olíu
4 egg
4 msk grísk jógúrt
4 msk 10% sýrður rjómi
1/3 bolli trönuber
1 grænt epli
lófafylli af smátt skornum rauðlauk eða vorlauk
Pipar til að smakka til
1/4 tsk karrý
1/8 tsk cayenne pipar
Epli skorið smátt og öllu blandað saman, geymt í ísskáp í klst áður en borið fram.
Þetta salat er mjög gott með eggjaböku og spínati.