Granóla bitar
1 1/4 bolli tröllahafrar
1 bolli lífrænt kornflex
1/4 bolli kókosflögur
1/4 bolli ósaltaðar pistasíu hnetur
1/4 bolli trönuber
1/2 tsk vanillu extract
1/4 tsk sjávarsalt
1/2 tsk kanill
1/3 bolli lífrænt hnetusmjör
1/3 bolli lífrænt hunang
1/4 bolli smátt skornar döðlur
1 tsk smjör til að smyrja formið
Fyrstu 8 innihaldsefnin í skál. Hnetusmjör, hunang og döðlur í pott og hitað í ca 3 mín þar til smjörið er bráðnað. Hrærið stöðugt í. Blandið vel saman við mixið og þrýstið í ca 20 cm form. Frystið í 10 mín og skerið í ca 12 bita.